Flettu í gegnum íslensk mannanöfn á auðveldan og skemmtilegan máta! Með Krílinu er hægt að fletta í gegnum öll samþykkt íslensk mannanöfn á einum stað, læka þau nöfn sem þér líst á og skoða þín uppáhalds nöfn hvenær sem er til að hjálpa þér að finna drauma nafnið. Krílið býður upp á fjölmargar stillingar til þess að auðvelda leitina. Þær stillingar eru meðal annars: - Velja hvort leitað sé eftir stráka nöfnum, stelpu nöfnum eða báðum - Bæta við eftirnafni - Skoða nöfn með millinafni - Festa ákveðið millinafn - Skoða nöfn í stafrófsröð - Skoða nöfn út frá völdum bókstaf Finndu drauma nafnið á krílið með Krílinu