Með Securitas appinu getur þú fylgst með og stjórnað öryggiskerfi og snjallbúnaði heimilisins, fyrirtækisins eða sumarhússins. Securitas appið færir þér möguleikann á því að stjórna og fylgjast með eigum þínum úr fjarlægð, sjá hvað er að gerast á heimilinu, vinnustaðnum eða í bústaðnum og gerir þér kleift að bregðast við með skjótum hætti. Möguleikarnir á stillingum snjallbúnaðar eru miklir. Þú getur t.d. • Sett öryggiskerfið á vörð og tekið það af verði • Fengið öryggisboð í símann ef eitthvað bregður útaf • Fylgst með því hver tekur öryggiskerfið af og hvenær • Stjórnað aðgangi að heimilinu á einfaldan hátt • Kveikt eða slökkt ljósin heima á ákveðnum tímum • Fylgst með rafmagnsnotkun heimilistækja • Fylgst með umhverfinu með aðstoð hreyfiskynjara og myndavéla • Fengið áminningar í símann fyrir þær aðstæður sem þú velur Securitas appið virkar einungis með Heimavörn, Firmavörn og Sumarhúsavörn öryggiskerfum Með Securitas appinu er þér auðveldað að fylgjast með heimili og/eða fyrirtæki úr fjarlægð, sem veitir þér óslitið öryggi öllum stundum. Stjórnstöð Securitas stendur vaktina með þér allan sólarhringinn, alla daga ársins.